fbpx

Finndu

draumabílinn

Skúlason Bílar sérhæfir sig í að finna draumabílinn fyrir þig erlendis, annast innflutning og koma bílnum í þínar hendur á góðu verði.

Um Skúlason

Skúlason Bílar sérhæfir sig í að finna draumabílinn fyrir þig, annast innflutning og koma draumabílnum í þínar hendur á góðu verði.

Ég heiti Árni Þór Skúlason og er stofnandi og eigandi af Skúlason Bílum (Skúlason ehf). Ég hef langa reynslu af sölu bifreiða og hef undanfarið einbeitt mér að bílainnflutningi. Ég bjó í Þýskalandi, þar sem ég kom mér upp góðum samböndum við erlenda aðila og get því auðveldlega aðstoðað þig við að finna rétta bílinn.

18 ára reynsla í innflutningi og sölu á bifreiðum til Íslands.

Ég hef unnið hjá nokkrum fyrirtækjum sem hafa sérhæft sig í innflutningi og sölu á bifreiðum, þar á meðal innflutningi á lúxusbifreiðum. Um árabil starfaði ég hjá Nýju Bílahöllinni og hef því góða þekkingu á íslenska bílamarkaðnum.  Ég flutti mig síðan yfir í Bílaumboðið Öskju, þar sem ég annaðist sölu á nýjum KIA bifreiðum og síðar nýjum Mercedes-Benz bifreiðum. Þegar ég var við störf hjá Bílaumboðinu Öskju sótti ég nokkur námskeið á vegum Mercedes-Benz erlendis.

Mitt markmið er að veita þér persónulega og góða þjónustu og finna draumabílinn fyrir þig. Endilega hafðu samband, ég hlakka til að heyra frá þér.

Með þökk fyrir góðar undirtektir.

Árni Þór Skúlason

Umsagnir viðskiptavina

Mercedes-Benz EQC fyrir Geir og Önnu

Glæsileg umsögn frá Geir um viðskipti hans og Önnu eiginkonunar hans á Mercedes-Benz EQC frá Þýskalandi.

Hér má sjá Geir og konu hans við hliðina á bílnum við afhendingu.

Mercedes-Benz EQC fyrir Ómar og Hjördísi

Glæsileg umsögn frá Hjördísi Ingvadóttur um viðskipti hennar og Ómars eiginmanns hennar á Mercedes-Benz EQC frá Þýskalandi. 

Umsögn um Skúlason Bíla frá Hjördísi

Hér má sjá Ómar Kristjánsson hliðin á nýja bílnum sínum þegar bíllinn var afhentur á heimili hans.

Ómar með EQC
Ómar hliðin á EQC

BMW X5 fyrir Gísla Eiríksson

Glæsileg umsögn frá Gísla Eiríkssyni, en við fundum fyrir hann mjög fallegan BMW X5 dísel bíl. Gísli var búinn að leita að bíl lengi á Íslandi en fann engan sem honum líkaði. Hann hafði því samband við okkur og við fundum fyrir hann glæsilegan bíl í Þýskalandi frá viðurkenndum BMW söluaðila. Eflaust einn af flottari BMW X5 dísel bílum landsins.

Hér má sjá Gísla og konu hans við hliðina á bílnum við afhendingu.

Gísli og konan hans við hliðin á nýja bílnum

Jeep Compass fyrir Ingimar Sigurðsson

Ingimar Sigurðsson eigandi Nýju Bílahallarinnar keypti með aðstoð okkar Jeep Compass frá Þýskalandi. Bílarsalar og bílaleigur hafa stundum leitað til okkar þar sem við höfum verið að bjóða sérstaklega góð verð á bílum.

Hafa samband

Við viljum endilega heyra frá þér ekki hika við að senda okkur skilaboð hér.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista til að fá nýjustu tilboðin beint í pósthólfið þitt